Flandran

Færslur: 2007 Mars

25.03.2007 16:52

Born to be a man????

Hæ, ég er sko hætt með blogsíðuna. Nenni þessu ekki alveg, hef alveg í nógu að snúast þar sem 2 námsmenn og 2 börn eru í heimili.

Hér er komið vor, í dag var hitinn hátt í 15 gráður og húsfrúin á stuttbuxum úti. Mér var svosem ekkert sérstaklega heitt, en heldur ekki kalt. Og þá er ágætisveður ekki satt?

Mamma sagði alltaf í gamladaga að ég hefði átt að fæðast með tippi. Og ég held að það sé alveg heilagur sannleikur. Ég hef síðustu ár reynt mitt besta til að verða svona nett kvenleg, og vonandi tekist ágætlega upp, yrði verulega svekt annars. En það vantar samt alltaf þetta x-tra kvenlega sem til þarf. Horfi stundum öfundaraugum á hommana sem hafa sko alveg þetta x-tra sem til þarf.

Í dag mundi ég eftir þessum orðum móður minnar, sem ég fékk svo oft að heyra og það rann upp fyrir mér að sennilega hefði ég orðið mun hamingjusamari karlmaður. Ekki misskilja.. mér finnst alveg cool að vera með pjollu og það hefur sína kosti af og til, en samt held ég að tippaegóið hefði nýst mér betur.

Dæmi:

1. Hærri laun

2. Heimilið ekki nr. 1

3. Þríf bara ef ég er í stuði (aldrei)

4. Get sett sjálfan mig í 1. sæti án útskýringa

5. Sennilega frekar fallegur karlmaður (sé það þokkalega fyrir mér)

6. Get pantað að eiga börn án ábyrgðar (eingöngu fyrir egóið, karlmenn halda frekar fram hjá vegna aldagamallar þarfar til að dreifa sæði sínu í sem flestar áttir)

7. Júhúúúú.. löglega afsökun til að halda framhjá!!!!

8. Er  sexy sem gráhærður

9. Meira að segja eftirsóknarverður sem sköllóttur, með ístru

10. Og alls ekki frekur.. bara ákveðinn karlmaður sem veit hvað hann vill

Þessi orð eru skrifuð vegna uppgötvunar sem frúin gerði í dag. Þ.e.a.s. að hún er egóisti í hömlum!!!!! Semsagt kúgaður karlmaður. með öðrum orðum: kvenmaður sem hefði átt að fæðast með tippi.Síðunni verður lokað á morgun vegna tæknilegra örðuleika nooooot. Frekari upplýsingar og jafnvel nýjar síður hjá sodoma@visir.is

Love you gæs end görls

P.s. Garðar var kosinn fimleikamaður ársins í gær. Og þvílíka stolta mamman hér!!!!!!!
  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 45916
Samtals gestir: 22007
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 04:37:07

Um mig

Nafn:

Sandra Eiðsdóttir

Farsími:

+45 2698 1504

Afmælisdagur:

24. apríl

Heimilisfang:

Bøggildsvej 1, 5230 Odense M

Heimasími:

+45 3698 1750

Um:

Click for Odense, Denmark Forecast

Tenglar